LIÐ HEIMAHAGA
Hinrik Bragason er liðsstjóri Heimahaga. Hann er tamningamaður og reiðkennari á Árbakka í Rangþárþingi og jafnframt einn kunnasti afkreksknapi landsins. Hinrik er margfaldur Íslands-, Norðurlanda- og heimsmeistari, auk þess sem hann hefur á ferlinum sýnt fjölda hrossa til hæstu einkunna í kynbótasýningum. Íslenska landsliðið hefur notið frábærra krafta Hinriks bæði innan og utan vallar um árabil. Hinni, eins og hann er jafnan kallaður, eyðir þó nokkrum tíma í hestamennskuna eins og gefur að skilja, en það sem færri vita er að mestur hans tími fer í að bóna bíla og horfa á boltann enda hans helstu áhugamál einmitt bílar og bolti.
Hulda Gústafsdóttir er tamningamaður og reiðkennari á Árbakka. Samhliða rekstri Árbakka hesta rekur hún ásamt Hinriki útflutningsfyrirtækið Hestvit ehf. Hulda hefur verið áberandi á verðlaunapöllum í íþróttakeppni síðustu misseri, enda einn af bestu knöpum landsins. Hún var kjörin íþróttaknapi ársins 2016, er margfaldur Íslands- og Norðurlandameistari, auk þess sem hún hefur verið liðsmaður í íslenska landsliðinu á HM og verið þar í úrslitasætum. Hulda er með ólíkindum fjölhæf, jafnvíg á flest, en auk þess að stunda þjálfun hrossa er hún afburðakokkur sem tryggir að allir munnar séu mettir eftir annasaman dag. Auk þess sér hún um bókhald og fjármál á Árbakka og er það hennar helsta verk að passa upp á að alltaf sé til í buddunni til að kaupa ný leiktæki handa Hinna sínum.
Telma L. Tómasson hefur lokið prófi í þjálfun, tamningu og reiðkennslu, reiðkennaraprófi C, frá Háskólanum á Hólum. Hún hefur stundað hestamennsku um árabil, þjálfar í Víðidal í Reykjavík og hefur verið á keppnisbrautinni með fínum árangri hin síðar ár. Aðalstarf Telmu er hins vegar í sjónvarpi og snýr ekki síst að faglegri umfjöllun um hestaíþróttir á Stöð 2 Sport, en þar hefur hún í 5 ár stýrt við góðan orðstír beinum útsendingum og umræðuþáttum um Meistaradeild Cintamani. Það sem fæstir vita er að hún er með fóbíu fyrir sundlaugum, er hrikalega lofthrædd og hefur enga leynda hæfileika svo vitað sé.
Sigurbjörn Viktorsson er ómenntaður tamningamaður og reiðkennari. Sigurbjörn var lengi vel einn efnilegasti kvennamaður landsins. Þjálfun og tamningar hrossa stundar hann í Víðidal í Reykjavík samhliða sínu aukastarfi sem einn efnilegasti viðskiptamaður þessa lands og þótt víða væri leitað.
Halldór Victorsson er sölustjóri, járningamaður, reiðkennari, dómari, djammari og fræðimaður. Halldór var einn efnilegasti járningamaður landsins en þjálfun og tamningar stundar hann í Spretti í Kópavogi samhliða sínu aukastarfi sem einn efnilegast dómari þessa lands og þótt víða væri leitað.
Jóhann Ólafsson er atvinnuklaufi að reynslu og mennt. Jóhann verður seint talinn efnilegur þó svo stefnt sé að því að komast á þann lista í náinni framtíð en hann hefur verið að reyna að þjálfa svolítið samhliða sínu aukastarfi sem hestabílstjóri, en þar er hann óumdeildur einn efnilegasti bílstjóri þessa lands og þótt víða væri leitað.
Heimahagi er ung og framsækin hrossarækt í eigu Jóhanns Ólafssonar og Þorbjargar Stefánsdóttur. Hjá Heimahaga er stunduð metnaðarfull ræktun og einbeitir Heimahagi sér fyrst og fremst að ræktun og sölu keppnishrossa. Markmð Heimahaga er að rækta falleg og fasmikil hross með mikla getu, gott geðslag og mikinn fótaburð. Heimahagi á margar glæsilegar og vel ættaðar merar, þar á meðal glæsihryssuna Krít frá Miðhjáleigu og móður hennar Dröfn frá Stað, Sif frá Helgastöðum, Brúney frá Grafarkoti, Gjöll frá Skíðbakka, Berglindi frá Húsavík og Evelyn frá Litla-Garði. Ræktunin fær að jafnaði 10 folöld á ári. Þetta er í annað sinn sem Heimahagi tekur þátt í Suðurlandsdeildinni.
--
Fyrsta mót Suðurlandsdeildarinnar fer fram 6. febrúar í Rangárhöllinni á Hellu. Keppt verður í fjórgang og hefst mótið kl. 18:00.
Suðurlandsdeildin fór af stað á síðasta ári við virkilega góðan orðstír en sérstaða deildarinnar er sú að atvinnumenn og áhugamenn keppa saman og mynda lið. Engin einstaklingskeppni fer fram. Deildin er samstarfsverkefni Hestamannafélagsins Geysis og Rangárhallarinnar. Liðin verða áfram 12 en knöpum fjölgar um einn í flestum liðum, bætt er við einum atvinnumanni.
Mótin verða áfram fjögur og eru dagsetningar eftirfarandi:
6. febrúar – fjórgangur
20. febrúar – tölt
6. mars – parafimi
20. mars – fimmgangur
Sjáumst í Rangárhöllinni í vetur!
— með Telma Lucinda Tómasson, Hulda Gústafsdóttir, Jóhann Ólafsson, Hestamannafélagið Geysir, Heimahagi og Hestvit - Árbakki..